Lýsing
- Lýsing
- Tækniupplýsingar
- Aukahlutir
Óbyggðirnar kalla
Hannað fyrir allar aðstæður, GPS tækið sýnir þér staðsetningu á félögunum, sér um að deila staðsetningunni þinni með þeim og býður upp á samskiptarmöguleika í gegnum inReach kerfið.
Heldur hópnum saman. Hópferlar fyrir allt að 20 ökumenn¹ og hægt að deila staðsetningu.
Innbyggð landakort og turn-by-turn leiðsögn² með OpenStreetMap.
Veðurheldni upp að IP67 staðli og 8“ snertiskjár sem hægt er að vinna á í hönskum.
Hægt að sækja gervihnattamyndir beint í tækið.
Í Tread appinu er hægt að skipuleggja leiðir, tengjast Group Ride³ eiginleikanum og fleira.
Auðvelt í uppsetningu. Festing með hosuklemmu fylgir.
Hópferlar
Tækið getur fylgst með allt að 20 ökumönnum. Þarft ekki símasamband. Hægt er að deila staðsetningu og senda forhlaðin skilaboð¹ til vina.
Harðgert
Hannað til notkunar við allar aðstæður. Vatnsheldni upp að IP67 staðli og uppfyllir kröfur Bandaríska hersins um högg og hitaþol (MIL-STD-810G).
Bjartur skjár
8“ bjartur snertiskjár sem hægt er að vinna á í hönskum. Tread var hannaður til að virka uppréttur eða á hlið og í öllum birtuskilyrðum.
Slóðaleiðsögn
Hægt er að fá slóðaleiðsögn² fyrir malarvegi og slóða með því að nota upplýsingar úr OSM kortum.
Inreach tækni
InReach tæknin býður upp á samskiptaleið í gegnum gervihnetti, getur sent og tekið á móti smáskilaboðum, deilt staðsetningu, SOS hnappur og veðurupplýsingar⁴.
Innbyggð kort
Tread fylgir innbyggt landa- og götukort af Evrópu, Afríku og Mið-Austurlöndum. Einnig fylgir Garmin Adventurous Routing™ eiginleikinn sem velur leiðir fyrir þig með beygjum, brekkum og malarvegum. Hægt er að sækja kort fyrir fleiri svæði gegnum Garmin Express forritið.
Gervihnattamyndir
Hægt er að sækja hágæða gervihnattamyndir beint inn í tækið í gegnum Wi-Fi.
ABC skynjarar
Innbyggðir ABC skynjarar; loftvog, hæðartölva, áttaviti og hallamál.
Öflug festing
Tækinu fylgir dokka og öflug festing til að festa Tread á þitt farartæki.
Group ride í símanum
Paraðu tækið við Tread appið í símanum og þú getur fylgst með staðsetningu³ félaganna þaðan.
Skipuleggja leiðir
Það er lítið mál að skipuleggja leiðir í Tread appinu, notar sömu stillingar og landakort sem eru í tækinu.
Gagnadeiling
Ef þú átt fleira en eitt tæki er lítið mál að deila leiðum og punktum á milli tækja með Tread appinu.
Veðurupplýsingar
Hægt er að para Tread við samhæfan snjallsíma og sækja Tread appið til að nálgast veðurupplýsingar og fleira.
Stjórnaðu aukahlutum
Hægt er að para Tread við samhæfan PowerSwitch frá Garmin (seldur sér) til að þú getir stjórnað öllum aukahlutum, eins og ljósum, lásum og krækjum, frá skjánum á Tread tækinu.
Tengist hundatækjum
Hægt er að para Tread tækið við valin Garmin hundatæki (seld sér) til að fylgjast með staðsetningu hundanna.
Tónlistarspilun
Innbyggður tónlistarspilari gerir þér kleift að stjórna tónlistinni úr símanum frá Tread tækinu og hlustað í gegnum hjálminn eða heyrnatól (selt sér).
Áhugaverðir staðir
Tread kemur með innbyggðum áhugaverðum stöðum (iOverlander™ POI‘s) svo þú þurfir ekki að vera í símasambandi til að rata til þeirra.
Tengdar vörur
-
Frá: 269.900 kr. Tread Overland Edition – 10″
Setja í körfu -
Frá: 139.900 kr. Tread SxS 5,5″
Setja í körfu -
Frá: 119.900 kr. Tread SxS 5,5″ – Base Edition
Setja í körfu