Capture LENS (Sony, Nixon, Canon)
11.900 kr.
CaptureLENS gerir þér kleift að vera snöggur að skipta um linsu, þú getur gert það með annari hendinni og getur geymt ónotuðu linsuna á öruggum stað. Vertu með CaptureLENS á hvaða bakpoka, belti eða tösku sem er. Þannig ertu snöggur að skipta um linsu og getur einnig geymt auka linsuna á festingunni og átt þá auka pláss í töskunni fyrir annan búnað. Í pakkanum er festing og eitt breytistykki fyrir linsu. Hægt er að velja um festingu fyrir from Canon EF, Nikon F eða Sony E/FE mounts.
Lýsing
Not sure what clip you need? See our comparison guide.
Auðvelt að geyma og skipta um linsur
Öryggi og þægindi
Með CaptureLENS er auka linsan geymd örugglega á bakpokanum, beltinu eða hliðartöskunni þar sem fljótlegt era ð ná í hana.
CANON, NIKON eða SONY
Þegar keypt er CaptureLENS, þá velurðu hvaða linsu þú ert með. Hægt era ð velja á milli: Canon EF, Nikon F eða Sony E/FE. Ekki er til möguleiki fyrir Micro 4/3, Fuji X eða aðrar festingar, en það gæti komið í framtíðinni.
Hafðu hana þar sem þú vilt
Passar á ólar sem eru allt að 7cm (3″) breiðar. Það á við um flesta bakpoka, belti og töskur.
Virkar með hvaða PEAK DESIGN ól sem er
Linsuhaldarinn sem kemur með CaptureLens settinu er með festimöguleika fyrir Anchor festingar, þannig að þú getur notað hvaða ól sem er frá Peak Design til að halda linsunni.
Passar fullkomlega með EVERYDAY MESSENGER töskunni
Ef þú vilt nota plássið í töskunni þinni fyrir eitthvað annað en linsur, Þá er Everyday Messenger taskan fyrir þig (seld sér). Taskan er með festilykkju sem hugsuð er fyrir CaptureLENS og aðrar festingar frá Peak Design.
Fljótlegt að skipta um linsur
360 gráðu stilling
Hægt er að snúa festingunni í 360 gráður og læsa henni svo í þá átt sem einfaldast er að ná linsunni úr, en á meðan helst auka linsan örugg á sínum stað.
Einfalt að losa linsuna
Að losa linsuna úr CaptureLENS er eins og að losa hana úr myndavélinni. Þú ýtir á rauða takkann og snýrð. Linsan læsist sjálfkrafa í festingunni þegar henni er snúið þangað til smellur heyrist..
Hentar líka stórum linsum
Heldur linsum af öllum stærðum og gerðum á öruggan hátt, hvort sem það er lítil og speglalaus linsa uppí stórar linsur fyrir atvinnumenn.
Heldur tveimur linsum í einu
Hægt er að hafa tvær linsur á festingunni í einu, en einnig er hægt að hafa bara eina, og nota þá aukafestinguna til að vera sneggri að skipta um linsu á vélinni þinni.
Veðurhelt
Festingin er úr gler-styrktu næloni og áli þar sem linsan smellur í festinguna. Tvö lok fylgja með til að koma í veg fyrir að ryk og vatn safnist saman í festingunni.